Karfan þín er tóm eins og er!
Hvítlaukur “Germidour”
790 kr.
Ekki til á lager
Snemmsprottinn, stór, skærfjólublár laukur með um 8 – 20 rifjum. Mildur en með fullkomið bragð, góður í ofninn og á grillið. Mjög fallegur laukur. Fléttanlegir toppar.
Skiptið lauknum í rif og rótin niður þannig að um 10 cm. mold hylji rifin. 10-15 cm milli rifja og 35-40 cm milli raða.
Upprunaland : Frakkland
Hvítlauk er best að rækta í næringarríkum, sandkenndum jarðvegi, en ekki blautum og þungum jarvegi en þá getur myndast rotnun.
Notið náttúrlegan áburð við gróðursetningu, og síðan skal gefa næringu snemma eða þegar snjó leysir og síðan nokkrum sinnum um sumartímann. Hvítlaukur þarf næringu og þolir ekki þurrka.
Eftir uppskeru er gott að þurrka laukinn á vel loftræstum og hlýum stað í um 2 vikur



