Upplýsingar um fyrirtækið

Netverslunin litlagardbudin.is og Litla garðbúðin, Austurvegi 21, 800 Selfossi eru reknar af
Vorboðinn sf. kt. 660204-2960, Borgartanga 2, 270 Mosfellsbæ, S: 587-2222 netfang: [email protected].

Vorboðinn áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða
upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru
Allar pantanir eru afgreiddar eins fljótt og auðið er, áætlað 1-3 virkir dagar. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar eða endurgreiða. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Vorboðinn ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá okkur til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Frí sending innanlands er á pöntunum 7.900 kr og
yfir nema annað komi fram í lýsingu á vöru.

Verð á vöru og sendingakostnaður
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum virðisaukaskatti en sendingakostnaður bætist við pantanir undir 7.900 kr. áður en greiðsla fer fram. Sendingakostnaður á næsta pósthús/póstbox er kr. 950 en heimsending kostar kr. 1.390.
Ef að verslað er fyrir kr. 7.900 eða meira þá fellur sendingarkostnaðurinn niður.

Að skipta og skila vöru
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.

Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir.
Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000
og laga um neytendakaup.

Trúnaður (Öryggisskilmálar)
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.

Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur


Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.