Karfan þín er tóm eins og er!
Tómatar Kirsuberja ‘Balconi Yellow’
590 kr.
-
Körsbärstomat ‘Balconi Yellow’
- Solanum lycopersicum
Pottatómaturinn ‘Balconi Yellow’ er 30 sentímetra há kirsuberjatómataplanta. Plantan er mjög þéttvaxin með dökkgrænum laufblöðum. Ávextirnir eru skærgulir, aflangir og enda með litlum oddi. Ávextirnir þroskast hratt og tómatarnir eru dásamlega bragðgóðir með ferskum og sætum ilm.
‘Balconi Yellow’ gefur mikla uppskeru snemma. Fyrsta tómatinn má uppskera allt að 70 dögum eftir gróðursetningu. Afbrigðið þarf ekki að klípa.
Hæð plöntu 30 cm.
Pottatómaturinn ‘Balconi Yellow’ er hannaður til ræktunar í pottum innandyra, á svölum eða veröndum. Hann má einnig rækta í Harvey vatnsræktun. Tómatur til að njóta allt árið um kring!
Þegar hann er ræktaður innandyra þrífst hann best í björtum og sólríkum glugga. Á veturna þarf hann aukna lýsingu.
Ef plantan er sett í lítinn pott getur stærð plöntunnar ráðist af stærð pottsins. Í minni potti verður plantan minni. Einnig er hægt að klippa hana til að halda henni lítilli. Í stærri potti verður plantan stærri.
Þegar ‘Balconi Yellow’ er ræktaður í gróðurhúsum má setja hann fyrir framan hærri tómatafbrigði til að hámarka nýtingu rýmisins.
Vökvið og gefið fljótandi næringu reglulega. Plantan þrífst best á sólríkum og skjólgóðum stað.
Forræktun:
Þessa tegund má rækta innandyra í potti allt árið um kring, notið auka lýsingu fyrir plönturnar á veturna.
Notið sáðmold fyrir fræin og haldið þeim rökum. Hyljið fræin með plasti eða setjið í minigróðurhús svo jarðvegurinn haldist rakur lengur. Besti sáningarhitinn er 18-21°C. Þegar plönturnar hafa sprottið upp, setjið þær á bjartan og svalari stað til að fá þykkar og heilbrigðar plöntur. Notið auka lýsingu, þetta kemur í veg fyrir að plönturnar verði háar og grannar.
Þegar hægt er að meðhöndla plönturnar og hafa fengið sín fyrstu einkennandi laufblöð (laufapar númer tvö) er kominn tími til að gróðursetja þær í aðeins stærri pott. Ekki bíða of lengi með endurgróðursetninguna, því þær þurfa næringaríkann jarðveg til að takast á við mikinn vöxt. Setjið plöntu í 7 til 10 sentímetra pott fylltan með næringarríkri mold (til dæmis blómamold). Littlar plöntur eru viðkvæmar og við prikklun dafna þær best þegar þær eru meðhöndlaðar með því að halda í laufblöðin en ekki stilkinn. Þar sem tómatar geta myndað nýjar rætur meðfram öllum stilknum er hægt að planta plöntunum djúpt í nýja pottinum, sem örvar vöxt nýrra róta. Plönturnar gætu þurft auka umpottun áður en þær eru settar á sinn endanlega vaxtarstað. Við útplöntun skal bíða þar til lægsti næturhiti er að minsta kosti +8°C.
Fræ fyrir 3-4 plöntur






